Katrín Jakobsdóttir með mesta fylgið

Heim / Fréttir / Katrín Jakobsdóttir með mesta fylgið

Katrín Jakobsdóttir mælist efst allra frambjóðenda til forseta Íslands en rétt um þriðjungur landsmanna eða 32,9% sagðist myndu kjósa hana ef forsetakosningar færu fram á morgun. Þá myndu 26,7% landsmanna kjósa Baldur Þórhallsson og 19,6% kjósa Jón Gnarr.

Ítarlega skýrslu má finna með því að smella hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 819, en þeir eru alls staðar að af landinu 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 5. til 8. apríl 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir