Tæplega 40% segja Bjarna hafa staðið sig verst á kjörtímabilinu

Heim / Fréttir / Tæplega 40% segja Bjarna hafa staðið sig verst á kjörtímabilinu

Maskína spyr nú þriðja árið í röð hvaða ráðherrar hafa staðið sig best og verst á yfirstandandi kjörtímabili. 42% aðspurðra finnst enginn einn ráðherra hafa staðið sig best á kjörtímabilinu en um 7% segja Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Katrínu Jakobsdóttur og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur hafa staðið sig best. Þegar spurt var um hvaða ráðherra hefur staðið sig verst er það Bjarni Benediktsson sem ber höfuð og herðar yfir aðra ráðherra, tæplega 40% aðspurða segja hann hafa staðið sig verst. Næst á eftir honum er Svandís Svavarsdóttir sem 10% segja hafa staðið sig verst.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 944, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 10. til 16. september 2024.Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Aðrar fréttir