Óánægja með störf ríkisstjórnarinnar vex

Heim / Fréttir / Óánægja með störf ríkisstjórnarinnar vex

Á hverjum ársfjórðungi birtir Maskína mælingar um ánægju og óánægju almennings með störf ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar. Óánægja með störf ríkisstjórnarinnar hefur vaxið um 4 prósentustig á milli ársfjórðunga og segjast nú 60% landsmanna óánægð með störf hennar. Þessi tala hefur aldrei mælst hærri en nú. Á sama tíma dregur úr ánægju og eru aðeins 14% aðspurðra ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar.

Störf stjórnarandstöðunnar mælast ekki sérstaklega vel fyrir en 12% segjast ánægð með þau en 41% óánægð.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 4.517, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram júlí – september 2024.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

 

Aðrar fréttir