Nýlega var lögð fyrir áhugaverð könnun í Danmörku af fyrirtækinu Epinion þar sem spurt var hvort danir teldu Bandaríkin vera bandamann eða andstæðing. Þær niðurstöður sýndu að talsverður meirihluti almennings þar í landi leit á Bandaríkin sem andstæðing eða 60%. Maskínu lék forvitni á að vita hver afstaða almennings á Íslandi væri og lagði því sömu spurningu fyrir hér. Niðurstöðurnar sýna að 40% svarenda taldi Bandaríkin vera andstæðing og um þriðjungur bandamann.
Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.216, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 6. til 12. febrúar 2026.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

