Í vor var haldið áfram með sölu ríkisins á eignarhlut sínum í Íslandsbanka en fyrri ríkistjórn hafði einnig selt hluta af eign ríkisins í bankanum árið 2022. Talsverðar umræður sköpuðust í samfélaginu í kjölfar sölunnar 2022 og voru ólík sjónarmið á lofti. Meiri hluti landsmanna var þá óánægður með hvernig haldið var á sölunni eða um 83% þegar Maskínu bar upp spurninguna í apríl 2022 og aðeins 7% ánægðir.
Þegar Maskína lagði spurninguna fyrir núna í ágúst voru niðurtöðurnar töluvert ólíkar, þar sem 45% sögðust ánægðir og aðeins 21 óánægðir með söluferlið. Af kjósendum ríkisstjórnarflokkanna eru það einna helst kjósendur Flokks fólksins sem skera sig frá þar sem 40% þeirra segjast óánægðir með söluferlið. Kjósendur Samfylkingar og Viðreisnar eru aftur á móti mun ánægðari en um 64% kjósenda Viðreisnar eru ánægðir og ríflega 53% kjósenda Samfylkingar. Hátt í helmingur kjósenda Sjálfstæðisflokksins er ánægður með söluferlið og tæplega 17% þeirra óánægðir.
Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.423, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 18. til 21. ágúst 2025.
Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.