Meirihluti andvígur veru RÚV á auglýsingamarkaði

Home / Fréttir / Meirihluti andvígur veru RÚV á auglýsingamarkaði

Reglulega blossar upp umræða í samfélaginu um stöðu fjölmiðla og oft er talað um veru RÚV á auglýsingamarkaði í framhaldi af því. Maskína lagði spurningu fyrir almenning um viðhorf hans til þessa. Niðurstöðurnar sýna að 27% segjast hlynnt því að RÚV sé á auglýsingamarkaði en 38% því andvíg. 36% eru hvorki hlynnt né andvíg. Þegar niðurstöðurnar eru rýndar eftir aldri sést greinilega að stuðningur við veru RÚV á auglýsingamarkaði eykst eftir því sem eldri hópar eru skoðaðir. Þannig er aðeins 16% hlynnt  núverandi fyrirkomulagi meðal yngstu svarendana en ríflega 20 prósentustigum fleiri meðal 60 ára og eldri eða 37%.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 963, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 22. til 27. október 2025.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

 

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.