Í kjölfar talverðrar umræðu um þá forgangsröðun sem sett var fram í samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar lagði Maskína spurningar fyrir almenning til að draga fram viðhorf hans til þessa. Í niðurstöðunum kemur fram að fleiri eru hlynntir forgangsröðuninni heldur en andvígir henni, eða um 44% hlynntur en tæplega þriðjungur andvígur. Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar eftir búsetu svarenda teiknast upp örlítið frábugðin mynd, þar sést að íbúar á Austurlandi eru andvígari þessari forgangsröðun en íbúar annarra landshluta. Þar eru tæplega 55% andvígir en um 27% hlynntir.
Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.002, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 25. febrúar til 3. mars 2026.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

