Reglulega kemur út Borgarviti Maskínu þar sem viðhorf borgarbúa um ýmislegt sem snýr að stjórn Reykjavíkurborgar eru mæld og sett fram. Niðurstöður síðasta Borgarvita ársins eru nú komin í loftið og þar kennir ýmissa grasa.
Niðurstöðurnar undirstrika enn á ný ótvíræðar vinsældir Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, en 24% segja hana hafa staðið sig best allra borgarfulltrúa á kjörtímabilinu. Á eftir henni kemur Hildur Björnsdóttir, oddiviti Sjálfstæðisflokksins, en 21% finnst hún hafa staðið sig best. Það er aukning um 4 prósentustig frá síðustu mælingu sem kom út í ágúst. Aðrir borgarfulltrúar voru nefndir mun sjaldnar.
Í Borgarvitanum kemur einnig fram að óánægja með störf borgarstjóra, Heiðu Bjargar, hefur aukist nokkuð frá því að hún tók við og mælist nú 50% á meðan 16% eru ánægð með hennar störf. Þessar tölur eru áþekkar þeim tölum sem Einar Þorsteinsson fékk í sinni síðustu mælingu í stóli borgarstjóra.
Borgarvitann í heild má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.034, búsettir í Reykjavík og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 20. til 26. nóvember 2025.
Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

