Veiðigjöldin hafa verið mikið til umræðu í íslensku samfélagi síðan atvinnuvegaráðherra lagði fram frumvarp um breytingar á þeim. Eins og svo oft eru skoðanir fólks skipta og hafa hagsmunasamtök í sjávarútvegi, SFS, bent á vankanta á breytingunum. Umdeildar auglýsingar fóru í loftið og Maskínu lék forvitni á að vita hvernig almenningi hefðu líkað þessar auglýsingar SFS. Niðurstöður Maskínukönnunar sýna að tveimur af hverjum þremur fannst auglýsingarnar slæmar fyrir málstað SFS og sama hlutfall alemennings kvaðst neikvætt gangvart auglýsingunum.
Maskína spurði einnig um skoðun fólks á frumvarpi atvinnuvegaráðherra og þar kom í ljós að 69% eru því hlynnt og hefur fjölgað í þeim hópi um 6 prósentustig frá því að Maskína bar upp sömu spurningu í mars.
Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.765, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 30. apríl til 6. maí 2025.
Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.