Maskína hefur frá árinu 2013 spurt um hvort Vatnsmýrin sé framtíðar staðsetning Reykjavíkuflugvallar. Þegar spurning var borin fyrir almenning nú í september sýna niðurstöðurnar að ríflega helmingur er hlynntur núverandi staðsetningu og telur að flugvöllurinn eigi að vera þar um ókomna framtíð. Hins vegar eru 22% því andvígir. Litlar breytingar má sjá í afstöðu fólk síðastliðin ár en í þeim mælingum má sjá að á bilinu 55-48% eru hlynntir núverandi staðsetningu og 22-24% andvígir henni ef horft er til áranna 2023-2025. Frá því að spurningin var lögð fyrir fyrst af hálfu Maskínu hefur þeim sem eru hlynntir framtíðarsaðsetningu flugvallarins í Vantsmýri fækkað um 20 prósentustig.
Ítarlegri niðurstöðu má finna í pdf-skýrslu hér.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 1.067, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 4. til 9. september 2025.
Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.
Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.
Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.