88% vilja að einkunnir séu birtar í tölustöfum

Home / Fréttir / 88% vilja að einkunnir séu birtar í tölustöfum

Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga, eða 88%, vill að einkunnir í íslenskum skólum séu birtar í tölustöfum fremur en bókstöfum, samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Aðeins 3% telja að nota eigi bókstafi, en 9% segja að það skipti ekki máli.

Stuðningurinn við tölueinkunnir er nokkuð jafn milli hópa, en hæstur meðal yngri svarenda. Í aldurshópnum 18–29 ára vilja 93% halda tölueinkunnum, á meðan stuðningurinn er 82% meðal 40–49 ára. Lítil sem engin munur mælist milli kynja eða eftir búsetu.

Ítarlegri niðurstöður má finna í pdf-skýrslu hér.

 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 990, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar. Könnunin fór fram dagana 15. til 19. september og 15. til 19 september 2025.

Í spurningavögnum Maskínu, sem lagðar eru fyrir almenning reglulega, er að finna spurningar um málefni líðandi stundar. Þessar spurningar eru samdar af starfsfólki Maskínu. Niðurstöður eru birtar á heimasíðu Maskínu og einnig sendar á helstu fjölmiðla landsins. Maskína birtir ekki fréttir upp úr könnunum sem unnar eru fyrir aðra eða eru kostaðar af öðrum né sendir út fréttatilkynningar um niðurstöður þeirra.

Í könnunum Maskínu er þess gætt sérstaklega að úrtök endurspegli fjölbreytileika samfélagsins – svo sem hvað varðar aldursdreifingu, búsetu og menntunarstig. Upplýsingar um dreifingu svarenda eftir ólíkum hópum eru birtar með niðurstöðum hverju sinni svo fjölmiðlar og aðrir notendur geti lagt sjálfstætt mat á gæði mælinganna og hvaða viðhorf þær endurspegla.

Notkun á efni af heimasíðu Maskínu er heimil svo fremi sem vísað sé til heimilda og þess sé getið skýrt hver uppruni gagnanna er.

Related Posts
maskina.is
Yfirlit

Maskína vekur athygli á að þegar farið er inn á maskina.is vistast vefkökur í tölvu notandans. Vefkökur eru smáar texta­skrár sem greina heim­sókn­ir og geyma kjörstill­ing­ar með það að mark­miði að bæta not­enda­upp­lif­un. Flestir vafrar taka sjálfvirkt við vefkökum. Vilj­ir þú ekki njóta ávinn­ings­ins af vefkökum get­ur þú af­virkjað þenn­an eig­in­leika í vafr­an­um þínum.